Færsluflokkur: Lífstíll
Í dag er ég með réttindi til stjórna stóru bifhjóli. Mér finnst ég aðeins meiri kona en ég var í gær. Nú vantar mig bara stóra bifhjólið og þá er ég tilbúin í allt og malt.
Lífstíll | 8.10.2007 | 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í dag mæli ég með þessu við vinnuna.
Annars er fínt af mér að frétta. Já, það hafa orðið smá breytingar á mínu heimili. Kata hamstur dó, við keyptum því einn Pétur í hennar stað. Frú Sigríður flutti svo inn um helgina.
Lífstíll | 5.9.2007 | 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég, eins og aðrir, bý í samfélagi með fullt af óskráðum reglum. Oft eru reglurnar þannig að engum dettur í hug að spyrja sig að því hvers vegna hlutirnir séu á einn veg en ekki annan. Ein af þessum reglum er konur eiga aðeins að hafa hár á höfði. Þangað til fyrir nokkrum árum var nóg að konur fjarlægðu hár undir höndum og fótum. Í dag er það ekki nóg. Umræðan um þessa nýjung varð töluverð fyrir nokkrum árum. Talað var um tískubylgju. Brasilískt vax varð víst vinsælt hjá ungum konum. Ég man eftir að hafa hlegið dálítið af þessu í einhverju kvennaboði og að ein hristi höfuðið og furðaði sig á því hvað konur væru að láta hafa sig út í. Ég hef orðið vör við það á mínum ferðum í líkamsræktina að þetta hefur ekki gengið yfir.
Þegar ég hef spurst fyrir um þetta hef ég heyrt fólk tala um ástæður eins og þægindi og þrifnað. Sjálf held ég mér nokkuð hreinni með því að fara í bað daglega. Og þægindi? Tja, ég hef einu sinni séð svona brasilískt vax í sjónvarpinu og það virkaði mjög lítið þægilegt. Stundum hef ég leyft mér að safna hári undir höndum og á fótum. Ég segi leyft mér vegna þess að mér finnst það mikill munaður að sleppa þessum rakstri. Einu óþægindin við að raka mig ekki á þessum stöðum er hvað ég er rosalega meðvituð um að það sé alveg hreint stranglega bannað. En þegar ég sleppi því spara ég bæði mikinn tíma og peninga. Allar háreyðingarvörur eru rándýrar. Þær geta verið rándýrar þar sem fyrir svo rosalega margar konur og eru þær nauðsynjavörur.
En ég er jafn mótuð og aðrir og á þess vegna sjálf til dæmis rosalega erfitt með það að fara í sund þegar ég hef verið að leyfa mér að slaka á.
Ég man ennþá eftir því þegar ég sat á veitingarhúsi fyrir þó nokkrum árum síðan með samstarfsfélögum mínum, sem flestir voru karlar, og talið barst að líkamshárum kvenna. Ég sagði að líkamshár kvenna væru auðvitað í sjálfu sér ekkert óæskileg eða ljót heldur væri bara búið að móta okkur til þess að finnast það. Ég sagði að mér þætti það svo sem ekkert skrítið þar sem það væri rosalegt hagsmunamál fyrir svo marga að líkamshár kvenna (já og reyndar karla líka, t.d. hef ég aldrei séð vel hært karlmannsbak í neinni auglýsingu eða bíómynd) þættu óæskileg. Þeir karlar sem sátu við borðið litu auðvitað á mig eins og ég hlyti að vera orðin eitthvað biluð. Svo var ég einmitt spurð að því hvort ég væri kannski svona femínisti. Ég var samt ekki að vinna á dekkjaverkstæði á þessum tíma heldur hjá fjölmiðli.
Stundum velti ég því fyrir mér hvort klámiðnaðurinn sé í samstarfi við fyrirtæki í háreyðingabransanum.
Lífstíll | 14.6.2007 | 17:36 (breytt kl. 17:38) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Í dag er ég ástfangin. Ég er ástfangin af lífinu sjálfu. Allt er eins og það á að vera.
Ég er ekki alveg viss um hvað það er nákvæmlega sem færir mér þessa gleði. Kannski er það að ég hef náð að fara út að hlaupa þrjá morgna í röð. Eða að Paris Hilton sé á leiðinni í fangelsi. Eða bara að það er komið sumar. Víhíhí!
Kannski finnst einhverjum þessi bloggfærsla mín púkaleg, eða jafnvel barnaleg. En þegar maður er ástfangin er manni alveg sama hvað öðrum finnst.
Lífstíll | 30.5.2007 | 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég sest við tölvuna, opna Internetið og heimsæki bloggsíðuna mína. Ég baða út höndunum, andvarpa og spyr sjálfa mig hver sé tilgangurinn með þessu öllu saman. Ég er þá ekki að spyrja hver sé tilgangurinn með þessu lífi, ég veit vel hver hann er. Ef ég hefði verið að spyrja hver tilgangurinn með þessu lífi væri gæti einhver haldið að ég væri þunglynd og jafnvel tilbúin að gefa þetta allt uppá bátinn. En nei aldeilis ekki, ég mun þrauka áfram a.m.k. á meðan ég er enn ung og falleg. Nei ég spyr hver tilgangurinn með þessu bloggi sé. Markmið og skipulag eru mín kjörorð. Ég er hvorki að finna fyrir markmiði né skipulagi hér. Get ekki sagt að ég sé sérlega stolt af sjálfri mér í augnablikinu.
Ég ætla út í göngutúr á eftir og hugleiða þetta, kannski fá ráð hjá fröken B. Ef ég finn ekkert gott svar, má búast við að ég segi upp þessari áskrift.
Lífstíll | 26.4.2007 | 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Stundum fæ ég störu. Börn fá störu og enginn segir neitt en þegar fullorðnir fá störu eru allir voða hissa.
Nei titillinn passar ekki.
Lífstíll | 26.3.2007 | 14:02 (breytt kl. 14:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ég hef tekið eftir því að síðan mín er með sama útlit og síðan hans Helga Seljans fréttamanns. Ég valdi bara eitthvað fallegt útlit sem var í boði. Það er ekkert þannig að mig hafi dreymt um að vera Helgi Seljan. Á tímabili langaði mig ekkert heitara en að vera Siggi vinur minn. En á síðustu misserum hef ég verið nokkuð sátt og bara viljað vera ég sjálf. Ég er samt ekkert að gefa í skyn að það sé eitthvað ömurlegt að vera Helgi Seljan. Ég gæti meira að segja trúað því að það sé ágætt að vera Helgi Seljan. Það þykir samt ekki smart af fullorðinni konu að vilja vera einhver annar.
Lífstíll | 28.2.2007 | 23:11 (breytt kl. 23:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar