Rendur

Veit einhver hvað maður þarf að fara oft í viku í ræktina til þess að verða eins og gellan á myndinni? RæktinÉg var búin að fara þrjá daga í röð í líkamsræktarsalinn og var því eitthvað stressuð við að fara líka í dag. En svo fór ég, og ég er bara ennþá svona sirka venjuleg. Ég held samt að ég leiki mér ekkert að eldinum. Á morgun ætla ég bara að leyfa mér að slaka vel á. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert með eindæmum óheppin, ekki bara verðurðu ekki eins og þessi ógurlega hot gella heldur missirðu líka af mér sem verð í ræktinni allan daginn á morgun því ég skal ná hamstringnum eins og á henni þessari. Ég skal!

Bergþóra (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 22:53

2 Smámynd: Vaff

Jæja ok, ég skal þá líka fara á morgun fyrst þú verður þar. En ef ég verð eins og þessi gella er það þér að kenna. Ég er alls ekki að segja að það sé slæmt í sjálfu sér, það yrði bara slæmt af því að ég myndi þá ekki lengur passa í fötin mín. Núna þegar ég hugsa um það þá sé ég að þetta er allt í fínast lagi, af hverju ætti ég svo sem að vilja vera í fötum ef ég væri svona mössuð. Það væri bara synd að fela alla þessa fallegu vöðva. 

Vaff, 12.7.2007 kl. 23:12

3 identicon

ég sá þig tilsýndar á sunnudaginn. ég gat ekki betur séð en þú væri alveg eins og gellan. kannsi ég hafi verið að taka feil..

lipurta (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 00:06

4 Smámynd: Vaff

Já ok, kannski sé ég sjálfa mig ekki í réttu ljósi. Kannski er ég rosa massi en sé sjálfa mig sirka venjulega í speglinum. Ég hef lesið um eitthvað svona svipað þannig að þetta er alveg til. 

Vaff, 19.7.2007 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband