Nýjar upplýsingar af ástandinu í US

Sky News er með puttann á púlsinum. Rétt áðan sá ég þar viðtal við konu sem ég þekki ekki. Mér þykir hins vegar líklegt að hún sé með gráðu í sálfræði eða geðlækningum. Þessi kona sat fyrir svörum fréttamanns sem vildi ólmur komast að því hvað hefði gengið í Britney. Konan fór yfir feril söngkonunnar og skýrði frá því hvernig margir atburðir, og þá sérstaklega hvað hún varð fræg ung, hefðu ýtt undir hegðunarmynstur sem væri með öllu óskiljanlegt. Hárið á Britney er eitt en aðal áhyggjuefnið er auðvitað áhrifin sem þetta kann að hafa á saklausar ungar stúlkur í Ameríku, og jafnvel á Íslandi. Mér yrði ekki brugðið ef við færum að sjá stúlkur með drengjakolla á næstu vikum.


mbl.is Aðdáendurnir áhyggjufullir og hárlokkarnir til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

100 dagar í reykbann.

Í dag eru 100 dagar í reykingarbannið. Í gamla daga þegar ég sjálf reykti fannst mér það aðeins of langt gengið að banna reykingar alls staðar. Mér þótti eðlilegt að fólk hefði val um reyklausa eða loftlausa staði, bæði gestir og starfsfólk. En þar sem ég á það sameiginlegt með svo mörgum öðrum að hugsa aðeins um eigin hagsmuni hefur mér algjörlega snúist hugur. Nú tel ég niður dagana af mikilli kátínu. Reykleysið hefur haft það í för með sér að ég hef þyngst um nokkur kíló. Það myndi koma sér afar vel fyrir mig ef settar væru einhverjar hömlur á neyslu sætinda. Ég veit að ég þarf ekki að kaupa mér sykursætan eftirrétt á veitingashúsum borgarinnar, en þegar þeir eru á boðstolnum og ég sé aðra gæða sér á slíku get ég bara ekki setið á mér og panta því þrjá.


Þjóðarsorg í US

Ef hárgreiðslukonan er ekki ábyrg hver er það þá? Ég bara spyr. Það sem mestu máli skiptir þó er hverjum á að refsa?

 


mbl.is Hárgreiðslukona firrir sig ábyrgð á klippingu Britneyjar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt blogg = nýtt líf?

Ég tók þá ákvörðun að breyta um lífsstíl og flytja bloggheimili mitt hingað

Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi hafði þessi áhrif á mig.

Ég horfið á undankeppnina með dóttur minni og vinkonu hennar í gær. Þær voru alveg sammála um hvaða lög væru best, þetta voru einmitt þau lög sem mér fannst frekar leiðinleg. Þær fengu að kjósa en sjálf sleppti ég því. Þá fór ég að spá að þetta er auðvitað málið, að semja lag sem krakkar falla fyrir. Það eru krakkarnir sem kjósa. Eða ég held það. Auðvitað fékk Silvía Nótt flest atkvæði í fyrra, krökkunum fannst hún æði í öllu sínum glitrandi búning og fullorðna fólkinu fannst hún fyndin. Reyndar voru sumir bara reiðir og tóku Silvíu Nótt dæminu bara sem persónulegri móðgun, en það fannst mér hins vegar mjög fyndið. En svo er það bara hann Eiríkur Hauksson sem fer til Finnlands. Það var ekki eitt af þeim lögum sem fór í taugarnar á mér. Ok, allir hressir. 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband