Virðisauki

Fékk mér kaffi á Kaffitári áðan, það hefur lækkað í verði. Fékk mér Spínatböku á Grænum kosti, hún kostar jafn mikið og venjulega. Er á leiðinni að versla í matinn, mjög svo spennt! 

Seljan

Ég hef tekið eftir því að síðan mín er með sama útlit og síðan hans Helga Seljans fréttamanns. Ég valdi bara eitthvað fallegt útlit sem var í boði. Það er ekkert þannig að mig hafi dreymt um að vera Helgi Seljan. Á tímabili langaði mig ekkert heitara en að vera Siggi vinur minn. En á síðustu misserum hef ég verið nokkuð sátt og bara viljað vera ég sjálf. Ég er samt ekkert að gefa í skyn að það sé eitthvað ömurlegt að vera Helgi Seljan. Ég gæti meira að segja trúað því að það sé ágætt að vera Helgi Seljan. Það þykir samt ekki smart af fullorðinni konu að vilja vera einhver annar.


Ódýr matur

Ætli ég fresti ekki þá þessari megrun minni eitthvað fram í næsta mánuð. 

Annars er þessi bloggfærsla merki um að ég hef nákvæmlega ekkert merkilegt að skrifa um. Bara svona að reyna að vera með.

Annars hef ég verið pínu feimin síðan ég flutti hingað á moggabloggið. Ég er feimin bloggari, kannski meira að segja svolítið andfélagslegur bloggari. Það er þess vegna sem ég fór í bláa dressið mitt áður en ég styllti mér upp í myndatöku fyrir bloggsíðuna mína.


mbl.is Matvöruverslanir í óða önn að undirbúa sig fyrir lækkun virðisaukaskatts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prison Break

FangiÉg er hætt við að kaupa mér áskrift að Stöð 2. Ég komst að því að Prison Break er bara leikin spennusería en ekki raunveruleikaþáttur. 

Vörutorgið

Bowling AloneÉg var að lesa Bowling Alone eftir Putnam. Þetta er áhugaverð bók sem segir frá rannsóknum hans á félagsauði í Bandaríkjunum. Í bókinni fjallar hann meðal annars um hvernig sjónvarpsáhorf hafi dregið úr tengslum milli fólks, og líkir þáttum í sjónvarpi við skyndibita. Sjónvarpsáhorf veitir því einhverja fyllingu, en hún virkar bara í skamman tíma því hún er ekki raunveruleg næring. Að hans mati verður fólk háð sjónvarpsglápi eins og hverjum öðrum skyndibita, sem skerðir frelsi fólks. Hann reyndar tekur það fram að sjónvarpsefni hafi mismunandi áhrif, ekki sé allt jafn slæmt að þessu leyti. Hann bendir líka á að fólk sem kveikir á sjónvarpi til að horfa á einstaka þátt er mun betur stadd heldur en fólk sem kveikir á sjónvarpinu til dæmis þegar það kemur heim úr vinnu og slekkur á því þegar það síðan fer í háttinn. Það horfir bara á það sem er í boði, og er alltaf með sjónvarpið í bakgrunni. Það er þessi hópur sem Putnam hefur áhyggjur af.

Mér varð hugsað til orða Putnams á föstudagskvöldið þegar ég kom heim og kveikti á sjónvarpinu. Berverly Hills 90210 var á dagskrá, og ég horfði, svo kláraðist Berverly Hills og Vörutorgið tók við, og ég horfði. Ég horfði og velti því fyrir mér hvort fólk myndi í alvöru að panta þetta nýja æfingatæki, sem gefur víst grennra og íþróttamannslegra útlit án þess að viðkomandi þurfi nokkuð að gera. Ég hef heitið mér því að horfa ekki á Vörutorgið aftur.


Fjölmiðlar um fjölmiðla frá fjölmiðlum til fjölmiðla

Mig langar að hvetja alla sem hafa áhuga á fjölmiðlum að lesa viðtal við prófessor Þorbjörn Broddason í Blaðinu í gær. Ég er fullviss um að margir gætu haft gagn og gaman af því.

Laugardagur til lukku

Gott kaffiÉg get ekki sagt annað en að ég sé búin að eiga nokkuð góðan laugardagsmorgun. Þannig að ég er nokkuð sátt við lífið. Nema reyndar er eitt. Mér finnst fátt betra en gott kaffi, fyrir mér er kaffi sko ekkert grín. Í morgun fékk ég enn einn vondan bolla af Cappuchino. Undanfarna daga, nei reyndar vikur, hef ég lent í því að fá gjörsamlega ómögulegt Cappuchino á kaffihúsum, veitingustöðum eða öðrum stöðum þar sem boðið er uppá Cappuchino. Mér þætti eðlilegast að það væru einhver lög sem bönnuðu stöðum sem hafa starfsfólk sem ekki kann að búa til Cappuchino að selja það. Það á bara ekki að vera í boði. Ég geri mér grein fyrir að þetta er orðin pínulítil þráhyggja hjá mér, og samkvæmt fróðu fólki þá er það ekki gott. Um daginn fór ég á kaffihúsið í Perlunni og horfði stíft á stúlkuna og spurði; kanntu að búa til Cappuchino? Hún sagði já auðvitað, og horfði á mig eins og hún hefði fæðst til þess eins að gera Cappuchino. Ég pantaði því einn, en fylgdist vel með. Ég sá strax þegar hún byrjaði að hún hlyti að hafa misskilið spurninguna. En hún var svo örugg með sig að ég vildi ekki eyðileggja stemninguna fyrir henni. Ég fékk Cappuchino í risa bolla með allt of mikið af mjólk sem búið var að sjóða, en náði með inngripum að forða kaffinu mínu frá 200 gr. af súkkulaðispænum. Ég borgaði fyrir kaffið en var í of mikillri sorg til að segja nokkuð. Ég drakk ekki kaffið mitt, fékk mér bara smá vatn.

Það eru s.s. nokkrir staðir í Reykjavík þar sem hægt er að fá gott kaffi en annars er þetta allt saman ódrekkandi. Ef ég er ekki á Kaffitári, Te og kaffi, Kaffibrennslunni eða litla kaffihúsinu við strætóstöðina þá panta ég mér bara pepsí eða eitthvað næst.


Ég skammast mín bara ekki neitt fyrir að vera Íslendingur

Ég hef nú ekki verið talin vera fröken forsjárhyggja. Mér finnst frelsi einstaklingsins nokkuð mikilvægt. En hef stundum áhyggjur af því að við séum að berjast fyrir frelsi sem við ættum ekki að vilja berjast fyrir. Er það ekki einmitt oft þannig að frelsi sumra heftir frelsi annarra.

 

Ég er nú ekki með allar staðreyndir á hreinu varðandi klámráðstefnuna, t.d. hvaðan þessi barnaklámsumræða kom. Fyrir mér er reyndar ekki til neitt sem kalla ætti barnaklám. Hvernig getur kynlíf með börnum verið eitthvað annað en ofbeldi, og því er það sem kallað er barnaklám bara alltaf ofbeldi í mínum huga.

 

Ég fór á eitthvað flakk á netinu og las nokkra pistla mjög svo æstra bloggara yfir hversu mikið þeir skammast sín yfir því að vera Íslendingar núna þegar framkoma einhverra okkar hefur valdið því að klámframleiðendur eru í fílu og vilja ekki lengur heimsækja okkur. Í fréttinni hér að neðan er linkur inná síðu ráðstefnugesta(eða þeirra sem voru á leiðinni hingað til að styrkja sitt tengslanet fyrir bransann) þar sem m.a. er boðið uppá Daddy I'm Nude og annað efni í svipuðum dúr.  Flest á þessari síðu er að mínu mati ofbeldi, sem ég er ekki til að berjast fyrir.

 

Berjumst fyrir fólki sem framleiðir efni ætlað mönnum með barnagirnd og grátum síðan saman yfir Kastljósinu og Kompás.


mbl.is Eigendur Hótel Sögu vilja hætta að sýna ljósbláar myndir gegn gjaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sía

Okkar sía verður væntanlega erfiðari í framkvæmt en sían á eyjunni Arezou. Það er auðveldara að banna bara öllum köllum aðgang heldur en að banna klámfólki aðgangi. Sumt klámfólk skylst mér að líti bara út eins og venjulegt fólk, eða næstum því.

Annars veit ég ekki með þetta allt saman.  Ég veit bara að 210.grein hegningarlaga á Íslandi er ekki að virka. Klám er ólöglegt á Íslandi en er samt seld í fjöldamörgum verslunum. Í umræðunni um klám (lögleiðingu eða ólögleiðingu) er stundum talað um frelsi til þess að velja. Mér varð einmitt hugsað til fresis míns til að velja ekki klám þegar ég horfi á fréttir í vikunni. Raunin er sú að mér er nokk sama hvort fólk í næsta húsi er að horfa á klám. Mér er hins vegar ekki sama hvort ég þurfi að horfa á klám. Umræðan um klámvæðing almannarýmisins finnst mér mun þarfari heldur en leyfa eigi einhverju fólki að velja klám. Ég vil geta horft á fréttir án þess að þurfa að útskýra fyrir 8 ára dóttur minni af hverju tvær konur eru saman nær berrasaðar í skrítnum stellingum í snjónum. Í þetta sinn sagði ég henni að það væri vegna þess að þær væru flogaveikar.


mbl.is Aðeins fyrir konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegan sprengidag

Ég og Bergþóra nágranni ætlum að skella í Sprengidagsboð í kvöld. Bergþóra var einmitt að hringja úr búðinni til að segja mér að pokinn af gulum sprengibaunum kosti aðeins 8 krónur. Hvorugar okkar höfum eldað saltkjöt og baunir áður þannig að við höfðum ekki hugmynd um hvað þetta væri ódýrt.  Bergþóra ætlar að kaupa sér 18 poka og ég bað hana að kaupa nokkra fyrir mig. Fullur poki af sprengidagsmat kostaði ekki nema um 1600 krónur. Sem er bara alls ekki neitt.  Við höfum boðið tveimur kaupsýslumönnum í mat, ef við hefðum vitað hvað þetta er ódýrt hefðum við boðið fjórum kaupsýslumönnum í mat. En það er of seint núna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband