Í síðasta boði var stofnaður hlaupahópur, minnir að það hafi verið á svipuðum tíma og ég og Siggi rifumst um hvor okkar er feitari. Allavega þá held ég að á morgun væri góður dagur til að hlaupa. Er einhver með?
Ég gæti sent fólki sms en efast um að ég þurfi það. Þessi bloggsíða mín er eins og vinsæll samkomustaður. Einu sinni hittist fólk á kaffihúsi til að ræða málin í dag hittist fólk á moggablogginu mínu. Ég veit meira að segja til þess að fólk hafi fundið ástina hér. Gaur sem ég þekki hitti eina hressa í athugasemd 9 í mars, minnir mig.
Íþróttir | 21.4.2007 | 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mikil umræða um transfitu undanfarið hefur haft slæmar afleiðingar í för með sér, eða að minnsta kosti á mína geðheilsu. Eftir töluverða íhugun tók ég þá ákvörðun að hætta að neyta transfitu. Ég var nokkuð viss um að við þessa breytingu yrði allt gott. Ég var uppfull af tilhlökkun, gat varla beðið eftir því að fara loksins að blómstra þegar ég yrði laus við eitrið. Mér til mikillar undrunar og gremju hefur þetta reynst mér um megn. Mér er gjörsamlega ómögulegt að sneiða hjá transfitu. Ég hreinlega elska allt sem inniheldur transfitu, og get ekki lifað án þess. Erfiðast er að segja skilið við örbylgjupoppið með Dexter á sunnudögum. Rétt áðan stalst ég í eina kexköku, mér leið eins og ég hefði sprautað mig með heróíni. Ég hef samt aldrei sprautað mig með heróíni og veit reyndar ekki hvernig sú tilfinning er en ég ímynda mér að hún sé svipuð og þeirri sem ég var að upplifa. Ég segi nú bara eins og dóttir mín; af hverju þarf allt sem er gott að vera vont og allt sem er vont að vera gott?
Matur og drykkur | 20.4.2007 | 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Í gær var ég spurð af því í hvaða stjörnumerki ég er. Ég er ljón.
Heiðarleiki
Einhverjir sterkustu og bestu eiginleikar Ljónsins eru heiðarleiki þess, göfuglyndi og einlægni. Hið dæmigerða Ljón vill segja satt hvað sem það kostar. Það vill vera trútt markmiðum sínum og hugsjónum. Það er því sjaldgæft að Ljónið selji sannfæringu sína. Vegna hins opna eðlis síns kann það ekki að ljúga eða fara á bak við aðra.
Suðræn skapgerð
Nokkur atriði geta komið í veg fyrir að Ljónið verði dæmigert opið, hresst og stórtækt Ljón. Ef það nýtur ekki virðingar og jákvæðrar hvatningar og því er auðsýnt afskiptaleysi, er hætt við að það hrökkvi inn í sig og verði daufgert. Ef vinna þess er ekki skapandi getur farið á sama veg og geislar sólarinnar dofnað. Þriðja atriðið er að Ljónið er merki sólarinnar. Það nýtur sín því best í hita og sól, en síður í köldu loftslagi norðlægra slóða. Það má segja að skapgerð Ljónsins eigi vel við lönd eins og Ítalíu. Varkárar og kaldar þjóðir norðursins eiga aftur á móti erfiðara með að skilja eðli þess.
Þetta er akkúrat það sem ég hef alltaf verið að reyna að fá fólk til að skilja.
Vísindi og fræði | 19.4.2007 | 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Í gær fór ég í hreint alveg yndislegt boð. Ég fór í svokallað Femmaboð. Ég er í hópi kvenna sem hittist af og til. Þetta er hópur sem hefur verið að myndast á síðustu árum. Við byrjuðum nokkrar að hittast fyrst í þeim tilgangi að auka aðferðarfræðiþekkingu okkar. Við vorum s.s. allar að læra aðferðarfræði sem okkur þótti afar skemmtilegt og hittumst því á föstudagskvöldum og fórum í spurningasúpu. Spurningasúpa er einstaklega hressandi leikur þar sem hver leikmaður setur nokkrar heimatilbúnar spurningar í skál og svo er það sem eftir er kvöldi eytt í að spyrja og svara. Við héldum áfram að skemmta hvor annarri á sama hátt með stjórnmálafræði, afbrotafræði og fleiri fræðum. Fyrir utan að eiga það allar sameiginlegt að hafa verið áhugasamir námsmenn erum við líka allar femínistar. Nokkrar úr hópnum lærðu kynjafræði, en þó ekki allar. Hópurinn hefur s.s. verið að stækka, og eru núna alls konar femmakonur í hópnum (úr öllum stéttum þjóðfélagsins>djók! (sko, ekki djók að við séum úr öllum stéttum heldur djók að taka fram að það séu ólíkar stéttir (svona GM grín) (sko, það er líka djók að útskýra djókið(ef ég er búin að brjóta einhverja sviga reglu þá er það líka djók)))).
Allavega, þá er alltaf hreinn unaður að hitta þessar konur því allt eru þetta klárar, fyndnar og fróðar konur, og það sem meira er þá er gaman að vera í hópi af konum sem furða sig jafn mikið á brasilísku vaxi og ég sjálf.
Í gær komst ég að frekar áhugaverðri staðreynd. Sko, þrátt fyrir að hafa svipaðar pólitískar skoðanir þá sérstaklega hvað varðar jafnrétti þá kjósum við samt ekki sömu stjórnmálaflokkana. Hingað til hef ég kosið flokk sem þykir mikill óvinaflokkur í þessari grúppu. Mér hefur stundum liðið eins og konunni sem seldi barnið sitt. Ég er reyndar ekki flokksbundin, og hef verið að horfa í aðra átt undanfarið. En ég s.s. komst að því í gær að kona sem ég hef mikið litið upp til er hvorki rauð né rauðgræn heldur blá. Merkilegt.
Stjórnmál og samfélag | 19.4.2007 | 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mig langar til að biðja hina fjöldamörgu föstu lesendur síðunnar minnar afsökunar á afkastagetu minni undanfarið. Mér þykir þetta leitt, en ég hef verið föst í mjög mikilvægum verkefnum. Þessi verkefni hafa krafist allrar minnar orku. Því miður get ég ekki fjallað um þessi verkefni hér og nú. En eitt get ég þó sagt, úrlausnir verkefnisins munu breyta heiminum. Þið sem hafið hingað til baðað út höndum og sagt; hvert stefnir þessi heimur okkar getið nú slakað á.
Ég setti þó inn nýtt lag á fóninn. Þetta lag er mjög viðeigandi á degi sem þessum, það minnir mig alltaf á hversu mikilvægt það er að vera samkvæmur sjálfum sér.
Vísindi og fræði | 18.4.2007 | 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Núna er föstudagskvöld, og eins og ég geri stundum á föstudagskvöldum er ég að hafa það kósý með sjónvarpstækinu mínu. Fór reyndar í boð en eins og yfirleitt var ég komin heim fyrir miðnætti. Fólk heldur stundum að ég flýi heim fyrir miðnætti vegna þess að skrílslæti sem hefjast oft uppúr miðnætti fari í taugarnar á mér. En þannig er það nú ekki. Ég er öskubuska.
Á föstudagkvöldi er á dagskrá Ruv einhver unglinga hryllingur. Þarna er ungt þokkafullt par á flótta undan mjög ljótum ljótum körlum. Þetta þokkafulla par er svona eins og maður sér í tískutímaritum. Þegar ég sé þetta par læt ég mig í smá stund dreyma, en ranka svo við mér og man að ég á ekki séns. Ljótu karlarnir verða alltaf ljótari og ljótari, ég hef aldrei séð svona ljóta karla. Þeir hljóta að vera mjög ljótir. En þeir vilja ekki deyja, og unga fallega fólkið verður að halda áfram að flýja. Ég væri reyndar til í að láta svona rosalega ljóta karla elta mig ef ég væri með svona magavöðva eins og sæta konan. Þau sleppa og ljótu karlarnir deyja, réttlætið sigrar. Það er fátt verra en unglinga hrollvekjur.
Jæja nú er að byrja mynd með Chris Rock. Ég hef ekki séð þessa mynd en eitthvað segir mér að hún sé litlu skárri. Alveg er ég viss um að Chris Rock tekst það, hvað sem hann ætlar sér að gera. Hann talar pínu skringilega (svona from the hood), er sama um allt og nær alltaf að segja eitthvað fyndið. Svo bara slær hann í gegn. CIA myndir eru alltaf svo sjúklega spennandi.
Í gegnum MSN hvetur Fr. B mig til þess að horfa á myndina sem hún lánaði mér. Hún segir mér að ég muni ekki skilja ástina nema ég horfi á hana. Hún er á einhverju flippi núna. Ég svara henni ekki strax, og hún biður mig um að setja ekki upp varnirnar, loka mig ekki inní hellinum mínum. Henni líður eins og hún sé að tala við vegg. Biður mig um að hleypa sér inní líf mitt og sál. Brjóstu út úr fangelsi varnanna, þú getur það! Þetta eru hennar orð. Hún meinar vel. Hvað er svo sem að skilja við þessa ást sem allir eru að tala um. Held að hún sé ofmetin, einhver bóla sem gengur yfir.
Kvikmyndir | 14.4.2007 | 01:09 (breytt kl. 01:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég er hálf einkennilegur bloggari held ég. Ég blogga sjaldan og þegar ég blogga er mér stundum alls ekki að skapi að fólk lesi bloggið mitt. Þegar hins vegar engin les bloggið mitt upplifi ég höfnun. Það þarf sko engin að segja mér hversu absurt það er að blogga og vilja ekki að fólk lesi það sem ég skrifa, ég veit það vel. Ég tók mig því til núna um páskahelgina ákvað að breyta um viðhorf, nú fagna ég hverjum einasta lesanda. Ég meira að segja gekk svo langt að ráðast í aðgerðir til þess að auka vinsældir mínar hér. Ég spurði sjálfa mig; hvað er það sem virkar hjá öðrum? Það er s.s. falleg músík og skemmtilegar partý myndir. Vinsældir Jónínu Ben hafa aldrei verið eins miklar og eftir að hún birti myndir úr afmælinu sínu. Núna er ég komin með skemmtilegt lag á fóninn og nokkrar vel valdar partýmyndir. Þetta hefur borið þó nokkurn árangur því bara í dag hef ég fengið yfir 100 innlit (eða reyndar í gær því núna er klukkan svo margt). 100 innlit eru svo sem ekki mikið ef miðað er við bloggara eins og Sigmar. En Sigmar er nú líka fræg sjónvarpsstjarna. Fræga fólkið hefur nú alltaf haft aðdráttarafl sem okkur hinum bara dreymir um. Svo er nú Sigmar líka með skemmtilega súrrealíska félagsfræðitilraun á blogginu sínu í dag sem hefur væntanlega vakið mikla lukku.
Annars er ég auðvitað með annað blogg í gangi þar sem ég skrifa færslur inn á hverjum degi. Þar kem ég ekki fram undir nafni. Bara mamma og einn gamall skólafélagi minn vita slóðina þangað. Á þeirri síðu birti ég ljóð eftir mig. Þar kemur líka fram mitt raunverulega viðhorf til innflytjenda.
Þannig er nú bara það.
Bloggar | 12.4.2007 | 00:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Minn kæri nágranni og vinkona fr. B var rétt í þessu að hringja í mig og bjóða mér með sér heim til foreldra sinna í Hnetusteik. Ég þakkaði gott boð en varð að afþakka þar sem ég er á leiðinni heim til hennar móður minnar í Svínasteik. Þar sem ég og fr. B erum báðar ólofaðar og eldhressar eyðum við frekar miklum tíma saman. Við erum þó oft meira eins og hjón heldur en vinkonur. Okkur kemur vel saman og eigum margt sameiginlegt þrátt fyrir að vera líka að mörgu leyti ólíkar. Okkur finnst einmitt einstaklega gaman að ræða þjóðfélagsmálin þegar við sitjum við kvöldverðaborðið með dætrum okkar. Oft erum við sammála en stundum alls ekki. Þegar við erum ekki sammála minnum við okkur á það mjög svo ólíka uppeldi sem við fengum og segjum hvor annarri skemmtilegar sögur af æskuárunum. Á meðan fr. B hlustaði á Böðvar Guðmundsson, 30. mars, Vögguvísur róttækrar móður og aðrar krataplötur með foreldrum sínum, sat ég og hlustaði á hetjusögur um Albert Guðmundsson. Þegar ég var barn vissi ég ekki alveg hvað kommúnisti var en vissi þó að þeim var ekki með nokkru móti treystandi. Ég velti því stundum fyrir mér þegar ég sá ókunnugt fólk hvort það væri svona kommúnistar og fannst erfitt að vita til þess að þeir gætu litið út eins og venjulegt fólk. Eða svona næstum því eins og venjulegt fólk, rauður fatnaður og dólgslæti voru alltaf í mínum huga sterkar vísbendingar um að halda sig í hæfilegri fjarlægð.
En núna er allt breytt. Núna erum við fr. B fullorðnar konur og látum skynsemi og góð rök ráða allri okkar ákvarðanatöku og skoðanamyndun.
Vinir og fjölskylda | 8.4.2007 | 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Jæja þá er ég bara komin aftur. Ég skrapp í sólarlandaferð til Majorka. Það var bara fínt. Var á ágætis hóteli með fínan sundlaugarbar og skemmtilegu borðtennisborði. Þrátt fyrir að ferðin hafi verið alveg geðveik skemmti ég mér betur á Benidorm í fyrra. Ég náði rosa lit og kynntist fullt af hressu liði. Ég ætla að halda sambandi við frændur sem ég kynntist. Þeir eru BARA þeir hressustu sem ég hef hitt, fara til Majorka á hverju vori. Það sem stendur uppúr eftir þessa ferð er að hafa látið mana mig útí að keppa í miss Sun Tan 2007. Ég lendi í öðru sæti. Þessi keppni var samt hálfgert svindl. Ég varð eiginlega alveg brjáluð þegar úrslitin voru tilkynnt. Sú sem vann er brún af því að hún ER brún. Ég hins vegar lagði rosa mikið á mig til þess að verða brún(enda heitir keppnin miss Sun tan ekki Miss Brown). Asnalegt. Ég er þessi brúna á myndinni, sú sem vann er þessi brúna með borðan í miðjunni (eins og það sjáist ekki mjög greinilega að hún svindlaði).
Ferðalög | 4.4.2007 | 00:45 (breytt kl. 00:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggar | 27.3.2007 | 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar