Sambúðin

Gat enginn varað mig við þeim sið hennar Frú Sigríðar að kveikja á kertum og spila Kenny G. öll kvöld?

Það hefði líklega engu breytt.  


Það var ég

Ég hef hugsað um þetta síðustu daga og hef ákveðið að koma hreint fram. Já það var ég sem hringdi í Biskup og kvartaði yfir nýju Síma auglýsingunni. En ef ég hef örugglega ekki verið ein um það, enda er auglýsingin þannig að hún gengur fram af öllu siðmenntuðu fólki.

Það fékk verulega á mig að sjá þessa auglýsingu, og ég hef eiginlega ekki jafnað mig síðan. Ég hef til að mynda átt erfitt með svefn. Ég fór í búðina í gær að kaupa mjólk og áður en ég vissi af var ég farin að gráta á kassanum, bara við það eitt að hugsa um þetta ljóta mál.

Ég skal fúslega viðurkenna að ég fer ofur sjaldan í kirkju sjálf. Samt sem áður hefur Síðasta kvöldmáltíðin alltaf skipað mikilvægu hlutverki í lífi mínu, og hún er síður en svo eitthvað sem á að gera gys að.

Nú segja sumir að sjálfur höfundur auglýsingarinnar Jón Gnarr sé sannkristinn. Ég á nú ansi bágt með að trúa því. Enda er hann í raun bara grínkall. Grínkall sem gerir grín af öllu. Er hann ekki bara að gera grín af Guði með því að segjast vera kristinn? Ég veit það ekki, en það virkar þannig á mig.

Þegar ég hringdi í Biskup og kvartaði yfir þessu leiðindarmáli var ég ekki eingöngu að hugsa um mig. Því við verðum alltaf að hugsa um þá sem ekki geta hugsað um sig sjálfir. Hvað með börnin? Gamla fólkið? Fatlaða? Fátæka? Landsbyggðarfólkið? Hvers á það að gjalda?

Nú er ég aftur farin að gráta.  


Músik

Í dag mæli ég með þessu við vinnuna.

Annars er fínt af mér að frétta. Já, það hafa orðið smá breytingar á mínu heimili. Kata hamstur dó, við keyptum því einn Pétur í hennar stað. Frú Sigríður flutti svo inn um helgina. 


Skilaboð

Á degi sem þessum finnst mér mikilvægt að nefna nokkur orð um hvað það er sem raunverulega skiptir máli varðandi blogg.

Það skiptir alls engu máli hversu oft þú bloggar, eða hversu mikið í einu, né hversu smart orð þú notar. Það eina sem skiptir einhverju máli er að bloggið þitt sé algjörlega óeigingjarnt og aðeins gert í þeim tilgangi að gera veröldina að betri stað.  Þá sérstaklega að stað þar sem börn geta alist upp í öryggi og frelsi.

Verði ykkur að góðu,
Margrét  


Umferðar-Ráð.

Nú langar mig að biðja ykkur sem akið bíl að hafa eftirfarandi í huga:

  1. Mótorhjól í umferðinni eru yfirleitt nær ykkur en virkar í fyrstu.
  2. Það er þó nokkuð um að mótorhjól séu í umferðinni og gerið því ráð fyrir þeim með því til dæmis að líta aftur til beggja hliða á gatnamótum þegar þið sjáið lítinn ljósageisla.
  3. Mótorhjól eiga sama rétt og bílar í umferðinni.
  4. Þrátt fyrir að ökumenn bíla geti ef til vill sagt “ég er í rétti og ætla því ekki að láta þennan bílstjóra svína fyrir mig” getur ökumaður mótorhjóls ekki leyft sér slíkt því líklega myndi það verða það síðasta sem hann leyfði sér.
  5. Það er u.þ.b. fjórum sinnum hættulegra að aka um á mótorhjóli heldur en á bíl.
  6. Fæstir sem keyra mótorhjól eru brjálaðir unglingar með spennufíkn.
  7. Innan skamms verður að öðru leyti skynsöm, góð 34 ára móðir í umferðinni á mótorhjóli. 

Ykkar einlæga,

Margrét


Með lögum skal land vort byggja

scully03Það er aðeins af algerri fórnfýsi og umhyggju fyrir meðbræðrum mínum sem ég hef ekki bloggað undanfarna daga. Ekki af leti eða framtaksleysi eins og einhver gæti haldið.

Síðustu daga hef ég verið að koma mér fyrir á nýjum vinnustað. Nú getið þið, mínir samborgarar, farið að anda léttar. Ég er farin að berjast gegn glæpum.

Ég fæ þó hvorki kylfu né handjárn. Ég fæ ágætis skrifborð, fínan skrifstofustól og tölvu.


Fátækt á Íslandi

Markaðsmál eru í engu sérstöku uppáhaldi hjá mér. Meira segja finnst mér orðið markaðsmál frekar fráhrindandi, enn verra finnst mér orðið promo. Kona sem ég þekki sagði mér um daginn að maðurinn sinn væri markaðsstjóri. Það fyrsta sem mér datt í hug var framhjáhald. Ég sagði samt ekkert við hana, það hefði ekki verið viðeigandi. En samt. Ég spái heilmikið í auglýsingar, og legg mig sérstaklega fram við að versla ekkert sem mér finnst markaðsett á ósmekklegan hátt. Ég mun til að mynda aldrei ganga í fötum frá Sisley. Þegar ég svo sé auglýsingu sem er mér að skapi þá reyni ég að versla vöruna sem er verið að auglýsa, stundum meira að segja þó að mig vanti ekkert það sem er verið að auglýsa.

 

Auglýsingarnar hans Hugleiks fyrir átakið Frítt í strætó átakið eru mér að skapi. Ég er búin að fylgjast vel með þessum auglýsingum. Þar sem ég er líka nemi hef ég verið að falast eftir frekari upplýsingum varðandi þessa nýjung. Ég fékk svo póst sem sagði frá því að háskóla frítt í strætó kortin væru ekki tilbúin. Ég hef haft áhyggjur af þessu síðustu daga, þ.a.s. að kortin yrðu tilbúin seint, að ég muni missa af kortunum þegar þau svo koma, hvar ég geti fengið nákvæmar upplýsingar um hvenær þetta hefst, hvort ég þurfi sérstaklega að sækja um kort og hvort það sé eitthvað sem ég þurfi að vita varðandi Frítt í strætó en viti ekki.

 

Ég var bara rétt í þessu að gera mér grein fyrir því að ég á bíl. Ég hef ekki tekið strætó síðan að ég eignaðist bílinn minn, ég hafði ekki gert neinar áætlanir um að selja bílinn minn. Þetta er að ég held gott dæmi um hvernig æskuárin hafa mótað mig. Ég ólst nefnilega upp í Breiðholti. Upp í Breiðholti eru ókeypis hlutir aldrei afþakkaðir. Ég hélt að allir færu út að borða í Hagkaup á föstudögum. Ég hélt að það væri eðlilegt að fara með alla fjölskylduna og láta hana smakka þangað til að allir væru pakksaddir. Ég hef lært af reynslunni að það er nánast ómögulegt að verða södd af smakkinu í Melabúðinni.

 

Já það er sko aldeilis rétt að þú getur tekið stúlkuna úr Breiðholtinu en þú getur ekki tekið Breiðholtið úr stúlkunni.


Grín

Í dag kom haustblað Smáralindar. Klukkan er rétt um 11 og ég hef núþegar reynt að vera fyndin með því að vísa í blaðið sem sorprit. 

Nei ég er ekki stolt af sjálfri mér í dag.  

 


Varúð!

Í gær fór ég í matarboð til mjög svo vingjarnlegrar og skemmtilegrar konu. Ef ég vanda mig rosalega mikið verður þessi kona ef til vill einn daginn tengdamóðir mín. Þetta var hið fínasta boð þar sem boðið var uppá góðan og hollan mat. Eftir matinn var boðið alveg hreint dýrindis heimabakaða eplaköku og ís og rjóma. Ég fékk mér tvisvar á diskinn og borðaði eins og enginn væri morgundagurinn. Síðustu nótt fékk ég svo eina verstu martröð sem ég hef fengið. Þessi draumur var bæði ógurlegur og hræðilegur. Ég man ekki allt en ég man að transfitusýrur léku þar stórt hlutverk. 

Er ég eina manneskjan sem á erfitt með svefn vegna transfitu?

Fyrir utan þessa martröð er ég nokkuð kát.

Rétt áðan fór ég í rósóttann sumarkjól og valhoppaði í háu grasi hérna rétt fyrir utan heimili mitt.


Að lifa lífinu lifandi...

imagesÉg las einu sinni í bók, sem var svo bæði þykk og falleg, að allir búi yfir geysilega miklum hæfileikum en að margir vita því miður ekki hverjir hæfileikarnir eru. Ég hef sjálf eydd töluverðum tíma í að finna hvar ég get skarað fram úr. Það gleður mig að geta tilkynnt ykkur það hér og nú að mínir hæfileikar liggja í því að geta lesið flest fólk eins og opna bók. Ég er nokkuð sátt við þennan hæfileika minn. Sérstaklega er ég glöð þar sem hann ýtir undir leikni mína í mannlegum samskiptum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband